orrifinn
Sunday, September 28, 2008
Sunday, May 4, 2008
Það er komið sumar í borg skrattans,hjólaði borgina upp og niður í dag í frábæru veðri tók nokkrar myndir af því sem varð á vegi mínum.Mér finnst að breska lögreglan þurfi eitthvað að láta sníða á sig nýja búninga það vantar meiri fasistafactor í þessa galla,annars veit ég ekki hvað þeir voru að þvælast í central park kannski að hræða terrorista.Appelsinuguli brjálæðingurinn er án efa eigandinn að þessu hjóli því hjólaði aðeins með honum áður en að hann skellti sér í hjólaskautana.
Niðri í kínahverfi er aðalsportið hjólapóló,hef ekki prufað það áður verð að skella mér í það við tækifæri.Svo sá ég krakka í capiero sem er bardaga list án snertinga mjög flott að sjá,anyway fallegur dagur í borginni
Saturday, May 3, 2008
Wednesday, April 30, 2008
Sunday, April 20, 2008

Var að eignast þriðja drenginn ,er mjög stoltur faðir og ánægður með lífið.
fæðingin gekk mjög vel og hún Erna mín kláraði þetta með sinni stóísku ró með glæsibrag, ég er ekki frá því að litli maðurinn hafi orðið svo heppin að fá þessa ró í vöggugjöf því hann er lítið búinn að láta heyra í sér,nú er bara að finna honum nafn
Tuesday, March 18, 2008
Írskir dagar í New York já það eru Írskir dagar á fleiri stöðum enn á Akranesi þessir dagar eru tileinkaðir heilögum Patreki eða réttara sagt dagur.Ég held við á Akranesi tileinkum okkar degi engum heilögum manni.Lögregluvaldið slakar aðeins taumnum hér á st patricks day og fólk drekkur á almanna færi enda er lögreglan hér undirlögð af amerískum írum og taka þeir sér fasistafrí einu sinni á ári.Ég verð að segja að mér hlýnar um hjartarætur og fæ bara heimþrá þegar ég sé fullt fólk í dagsbirtu ,tala nú ekki um að kasta af sér vatni eða jafnvel ælandi stúlkukind. Allt á almannafæri á virkum í NY
Saturday, March 15, 2008
bloodcake og puffin í mallan minn


Fékk hringingu um daginn og félagi minn sagði mér að stilla á travel channel.Þar er þáttur sem heitir bizarre foods með Andrew nokkrum zimmern,í þættinum ferðast Andrew um heiminn og smakkar á svona undarlegum local réttum.Minn maður var mættur til Íslands,fyrst var farið eitthvert út land þar sem Andrew heimsótti einhvern afskekktan bæ þar sem hákarl er unnin og úldnar upphengdur í skúr.Andrew er ýmsu vanur en lyktin yfirbugaði mannin næstum en hann var mjög ánægður með bragðið og bóndin hafði varla við að skera ofan í hann hákarlinn.
Svo fór hann í slátur eða slaughter a.k.a bloodcake eins og hann kallaði það á öðrum bæ og lagaði slátur með húsfrúnni ,þetta var allt svo lífrænt og gott ég varð allur bara uppveðraður og langaði helst bara til að taka ískápinn minn úr sambandi verða dálítið svona oldskúl.
Andrew fór líka til eyja og borðaði lunda,ég hef aldrei smakkað lunda og eina skiptið sem ég man eftir að hafa séð lunda er á Laugardagsvelli á bikarleik ía íbv eitthvað svona Árni Sveinson time hangandi í snöru ku klux klan style í stúkunni sem krakki (djöfull voru allir brútal þegar maður var krakki)enn mig langar að smakka!
Ég er staðráðinn í því að þegar ég er fluttur á Frón að halda í hefðina og borða hákarl og taka slátur hver er með í bloodcake klúbb Gulla?


